NÝTT

Sniðugar vefsíður
Hefur þú stundum velt fyrir þér hvernig Gerbera lítur út eða önnur blóm sem fagfólk í blóma-geiranum nefnir? Hér að neðan eru síður sem hægt er að skoða nánast öll blóma frá A-Ö.
www.thefloralnet.com
www.aboutflowers.com


Svíakonungur í heimsókn
Hluti af stærri heild – við hjá Blómahönnun urðum þess heiðurs aðnjótandi síðla árs 2004 að konunglegi blómaskreytir sænsku hirðarinnar fékk okkur til að taka þátt í að skreyta glæsilega konungsveislu er sænski konungurinn, Carl Gustav og Sylvia svíadrottning héldu til heiðurs Íslendingum á Nordica, þar sem salurinn nánast svignaði undan blómum og glæsileik. Við bendum því viðskiptavinum okkar á að oft vinnum við sem hluti af stærri heild þegar um stór verkefni er að ræða, s.s. árshátíðir, sýningar, fundi eða aðrir stórviðburði – þá fáum við til liðs við okkur og vinnum með, tæknifólki, hönnuðum, matreiðslufólki og svo mætti áfram telja. Hafðu samband við okkur – við gætum orðið hluti af þinni heild!

 



   

Blómahönnun ehf. | Listhúsinu í Laugardal | Engjateigur 17-19 | 105 Reykjavík | Sími 533 1199

Hönnun; Gagarín