ÞJÓNUSTA

Einstakt blómaverkstæði
Blómahönnun sérhæfir sig í þjónustu með afskorin blóm til fyrirtækja og einstaklinga. Blómahönnun leggur metnað sinn í fagmannlega þjónustu, áreiðanlega og ferska vöru. Starfsmenn fyrirtækisins hafa menntun á sviði blómaskreytinga, hönnunar og lista, auk víðtækrar reynslu í meðhöndlun afskorinna blóma. Blómahönnun býður upp á sérhannaða blómvendi, stílhreinar og öðruvísi skreytingar sem breytast árstíðarbundið samfara blómaframboði hverju sinni auk hefðbundinna skreytinga.

Nýjungar
Blómahönnun býður ýmsar nýjungar sem eru til hagræðingar fyrir viðskiptavini okkar. Eftirfarandi eru nokkrar nýjungar sem Blómahönnun býður upp á og mun leysa ýmis vandamál sem almennt fylgja blómakaupum fyrirtækja og þar af leiðandi sparar þeim tíma, peninga og fyrirhöfn :

• Við sækjum og sendum til fyrirtækja
• Við höldum undirskrifuðum kortum á lager frá föstum viðskiptavinum
• Við afhendum blómasendingar með persónulegum hætti
• Við sjáum um kaup á gjöfum sé þess óskað með blómaskreytingu
• Við höldum utan um afmælislista starfsmanna fyrirtækja
• Við leggjum umfram allt áherslu á fagmennsku og trausta þjónustu


Námskeið í blómaskreytingum - Byrjendanámskeið
Ekki er gerð krafa um reynslu né sérstaka menntun. Þetta námskeið gefur innsýn í blómaskreytafagið með tæknilegri þjálfun, hagnýtum æfingum og ítarlegum fræðum um fagið. Farið verður yfir mikilvægustu atriði fagsins og fagleg vinnubrögð. Nemendur munu læra að útbúa vendi og skreytingar af öllu tagi.
Verð: 149.000 kr.
Lengd námskeiðs: 8 dagar
Innifalið er allt efni.

Áhugasamir vinsamlega sendið okkur tölvupóst


   

Blómahönnun ehf. | Listhúsinu í Laugardal | Engjateigur 17-19 | 105 Reykjavík | Sími 533 1199

Hönnun; Gagarín