|
UM
OKKUR
Blómahönnun
er öðruvísi og skemmtileg blómabúð
og vinnustofa sem sérhæfir sig í nútímalegum
og stílhreinum skreytingum fyrir einstaklinga og
fyrirtæki. Þar starfar fagfólk sem hefur
sérhæft sig erlendis í skreytingum við
öll tækifæri, ráðstefnur, aðalfundi,
þemadaga, árshátíðir, brúðkaup
og jarðarfarir til að nefna nokkur dæmi.
Blómahönnun
er leiðandi í nútímalegri hönnun
og finnur réttu og hagkvæmu lausnina fyrir
þig. Við leigjum út vasa í öllum
stærðum og gerðum, gerum verðtilboð
og sendum myndir af tillögum til viðskiptavinarins
á rafrænu formi, setjum upp skreytingarnar,
tökum niður, sækjum og sendum.
Láttu
okkur sjá um umstangið til að gera þitt
fyrirtæki eftirtektarvert hvort sem er á ráðstefnunni
eða í kokkteilpartíinu.
Fersk
og framandi blóm – einstaklingsþjónusta
eða fyrirtæki! Komdu við hjá okkur
og við tökum vel á móti þér.
María
Másdóttir
María
Másdóttir er listfræðingur að
mennt og útskrifaðist með BFA próf
frá Rockford College í Bandaríkjunum
árið 1986. Hún hefur síðan
haldið málverkasýningar í Bandaríkjunum,
Noregi og Íslandi. María stundaði blómaskreytinganám
við Binderiet í Osló á árunum
1999 og 2000 og útskrifaðist sem blómaskreytir
árið 2000. María starfaði hjá
hinum virta blómaskreyti og Evrópumeistara,
Thor Gundersen í Osló 2000-2001 við stór
og krefjandi verkefni. María lauk verkefninu "Auður
í krafti kvenna" við HR 2002 og hlaut Auðarverðlaun
fyrir hugmynd sína að Blómahönnun
og var fyrirtækið opnað í kjölfarið
í febrúar 2002.
|